Useless information

But still...you´re reading it?

miðvikudagur, apríl 19, 2006

Myrkfælin

Úff það er soldið dimmt hérna. Soldið spúkí, scary. Ég er ekki frá því að ég sé myrkfælin. Það er enginn heima, nema inga, og hún hefur ekkert að gera. Eða jú, ég get svo sem gert ekkvað en ekkert sem mig langar til að gera. Grái þráðurinn sem ég var að sauma með kláraðist rétt í þessu og ég á ekki meira :( hvað á ég að gera í því..? ekki sniðugt, þarf að farað klára þennan jakka, og allt lokað á morgun. Ohh.
Shjí það er dimmt hérna, og ég að horfá Law and order. Nýbúið að finna haus af konu, og hnéð á henni ef ég er náði þessu rétt. Sjúka sjúka fólk sem gerir svona. Það er eins gott að það sé enginn svona sjúklingur í nágrenninu. Þar sem að ég er ein heima er ég í innsta herberginu með allar útidyrahurðir læstar og dregið fyrir glugga, slökkt allstaðar og herbergið mitt læst og ég undir sæng og passa mig að tærnar standi ekki útfyrir sængina. Kokkurinn er alltaf að vinna, nú ef hann er ekki að vinna þá er hann að djamma, ef hann er ekki að djamma þá er hann með veislu. Hann er allavega ekki hér í næsta herbiggi til að veita manni öryggistilfinningu. Ekki get ég farið fram að spjalla við perramennina fyrir framan imbann og ég þori ekki að fara ein fram og setja spólu í tækið. Hvað er ég búin að koma mér í :/ og nú er að koma í ljós að það var réttarlæknirinn sem nauðgaði líkinu og skar það svo í búta og seldi líkamsleifarnar, víst vani hjá helvítinu. Ég var 2 vikur að jafna mig eftir the ring, just so you know. Býst við að allir heima séu að búa sig undir að fara á ball. Góða skemmtun :) Ég kannski þori að standa upp á eftir og kveiki ljósið, set plötu á fóninn og tek nokkur spor til heiðurs ykkur. Kem mér í gírinn og verð svo bara í símasambandi ;) like i´m almoust there. Úff það er alltaf eins og ekkvað sé að hreyfast fyrir utan gluggan...það kom fyrir vinkonu mína hér í boltanum að hún vaknaði eina nóttina og leit út um gluggan sem var beint fyrir ofan rúmið hennar og sá ungan mann með svona bófahúfu á sér og hann stóð bara þarna og starði á hana, síðan hljóp hann í burtu. Creepy!! og þetta er ekki lýgi. Ég væri lengi að jafna mig.

Breyta um umræðuefni...hmm..já. Ég er að fara til Rúmeníu um helgina og verð alla næstu viku. Ég var valin í 18 manna landsliðshóp undir 19 ára. Það má alveg vera sáttur við það. Þó svo að það séu flóð og fuglaflensa í landinu. Það má búa til lítið ævintýri úr því...risky..haaa. Annars veit ég ekkert um Rúmeníu. Hvaða gjaldeyri þeir nota, tala þeir...ég er ekki viss hvaða mál einu sinni(fáfróða inga), hver er forseti, ég veit að það er ekki kóngur :) Allar upplýsingar um rúmeníu eru vel þegnar. Kannski ég fari bara að kynna mér landið núna, ég nenni því alveg og ég ætla líka að hringja á Selmu mágkonu, athuga hvort hún sé ekki game í að dútla við hárið á mér á morgun. Sweet...dúdledúdlídúúú sjíbídúa dadedúdey, ég er að komast í stuð.

Blankiflur hætt að vera myrkfælin, ætlar að stíga undan sængina og stara í augu óttans og yfirvinna hann. Ég verð nefnilega að komast fram í eldhús, mig langar svo í appelsínu úr bónus, þær klikka ekki!!

Svona verð ég eftir dansæfingarnar í kvöld ;)
Afhverju var maður ekki duglegri að æfa sippið :)
Svona á að svara fyrir sig href="http://www.metacafe.com/watch/104590/lita_trish_catfight/">
Geta þetta ekki allir?
Americas next top model??
Oh kettir
Nei...feitur rass..??

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim