Ú komin laugardagur og mín mætti aðra helgina í röð klukkan 7 í vinnu. Það er ekki oft sem að Inga Birna hefur sig út í það.
Það er líka smá spenningur í gangi. Flýg á Akureyri á ettir og hitti mömmu og pabba. Síðan er ætlunin að tjalda tjaldvagni ömmu og afa völu í garðinum hjá ívari frænda. Erum 7 sem ætlum að troðast þar í einu hólfi..kósí :Þ Jáhh það virðist sko ætla að verða ekkvað úr "útilegu í bakgarðinum" hugmyndinni minni :) Veit ekki alveg hvernig planið er en það var haldinn fundur hjá snorra snorrasyni, manninum sem ég braut ekki borðið hjá, í gær. Þar var allt planað útí ystu þannig að ég fer bara með straumnum eins og sagt er á góðri íslensku. Eitt er þó víst að við ætlum að fara á ísland-danmörk oldboysversion um kveldið og kannski fá sér einn tvo kalda með. Ekki amalegt! Það vildi svo líka heppilega til að stuðmenn fréttu að við værum að fara á Ak þannig að þeir ákváðu að koma líka og vera með ball í sjallanum :Þ Þannig að þessi útilega verður svo sannarlega útileguleg, liggur við að ég fari og kaupi ferðasjónvarp í BT áður en ég fer. Þá verður þetta alvöru :)
Þá er það ekki meira í bili. Tékkiði uppistand/smitandi hlátur á kvikmynd.is
Blankiflur
3 Ummæli:
Þann 1:00 e.h. , Nafnlaus sagði...
INGA BIRNA!!!
Þarf aðeins að ræða við þig á eftir...
Þann 4:14 e.h. , Nafnlaus sagði...
Þetta var nú góð kjaftasaga Björk mín :)
Þann 12:59 e.h. , Nafnlaus sagði...
Inga Birna mín.. sussss..
Þú ert svaðalega!!!
Ég bara get þig bara ekki..
Aðeins ooooof heit gella fyrir mig ;)
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim