Useless information

But still...you´re reading it?

fimmtudagur, ágúst 09, 2007

bleeesuð

ferðasaga segiði....

Herjólfur: viðbjóður, ældi 2svar

Föstudagskvöld: Eitursvalar uppí brekku með derhúfu á ská dansandi við XXX rottvæler..

Laugardagur: Ekki mikil þynnka, rok en sól, sund og svefn.

Laugardagskvöld: Stebbi og Eyvi, liðsheildin hélst lengst framan af kvöldi! kuldi, þegar leið á. Crashaði í tjaldinu hans Alla. Kiddi var "hvar er Valli"! ógeðslega fyndið!!

Sunnudagur: sofið til 5. Skúraði íbúðina og tókum til. Geðveikt veður!!!

Sunnudagskvöld: the kvöld!! Hættur að finna mun á edrú og fullur. Minnir samt að minns hafi verið fullur :)
Man allana eftir:
- snilldar brekkusöngur, 12000 manns að syngja með var ég að heyra.
- loksins fékk ég að syngja þjóðsönginn hátt!
- blys og flugeldasýning, geðveikt! lá við að maður ruglaðist aðeins í rýminu og fór að óska öllum gleðilegs nýs árs! :) gleði gleði
- hitti gamlan félaga úr MA, tókum gott tjútt á litla sviðinu og keyptum alltof mikið af poppi.
- stakk félagan af! inga vond
- hitti Kadý í innkaupakerru, ákvað að taka mér far yfir dansgólfið :D
- Alli og Steinar sátu í rútusæti í miðri brekku. Veltist alltaf fram og aftur, ég tróð mér á milli og veltist fram og aftur úr hlátri með þeim!!
- Dregin inní hvítatjaldið hennar jónu. Þar var tekinn upp gítar og það sem eftir var af raddböndunum fór í að reyna að heilla pabba hennar...jóna kemur manni alltaf í ruglið!!
- lífið er yndislegt með magna og hreim kl 7 um morguninn!
- heilsaði uppá hreim og vigga!
-Viggi splæsti í burger nr 2 þessa nótt.
- Rölti niðri bæ með þessum tveim vitleysingum í góðaveðrinu, Hreimur tók mig í höfuðstökkskeppni!! djöfull!!
- húkkaði mér far með löggubíl heim kl. 8! VIP skilur.. :þ
- kom heim, fann beddan minn og steinrotaðist :)

Mánudagur: hefði frekar orðið eftir í eyjum en að taka helvítis bátinn aftur. Hringdi í Begga einkaflugmann og viti menn, hann var akkurat að rúnta um háloftin þannig að hann kom bara og sótti mig!! Fékk meiraðsegja að taka í stýrið, sem er kannski ekki merkilegt, nema hvað að ég hef aldrei flogið sjálf undir áhrifum áfengis áður :D

æhj ég vorkenni þeim sem voru ekki í eyjum...hehe
tvær myndir fá að fljóta með...



minns með dalinn í bakgrunn



Minns fuglur að fljúga heim :D

Blankiflur meikaði þjóðhátíð með stæl þetta árið!!

4 Ummæli:

  • Þann 3:48 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

    úff.. þetta hljómaði alveg skelfilega skemmtilegt!
    Stefnan er sett á eyjar á næsta ári :)

     
  • Þann 11:26 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

    Næsta ár verður árið

     
  • Þann 9:57 f.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

    Já það er eins gott fyrir ykkur að standa við þetta!! :) þetta verður alltaf jafn skemmtilegt! :)

     
  • Þann 1:08 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

    Tekur þig vel út í flugmannssætinu ;)

    En já, eyjar eftir ár!

     

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim