Vitiði, ég er svo glöð. Var að enda við að tala við söndru og ég er ekki alveg að átta mig hvað hún er búin að vera lengi í burtu! Allt sem ég þurfti að segja áður en inneignin kláraðist og ég náði ekki einu sinni að kveðja :( en hún er allavega komin heim og ég get ekki beðið að bragða á einhverjum kræsingum þegar ég kem um páskana :) Hún sandra er samt ekki að fara að taka neina frönsku kúrsa, nehei hún þarf að farað læra íslenskuna aftur. Búin að gleyma hvernig á að beygja á íslensku, ég hef reyndar aldrei verið með það á hreinu sjálf :/ man samt þegar ég kom frá svíþjóð og talaði um knifa og gaffelinn :) good times, í svíþjóð, snilldar land. Sandra, við ráðum okkur eitthvert sumarið í vinnu í svíþjóð. Rifjum upp mál og minningar. jé ég er svo ánægð að fá þig heim.
Jæja nó um það.
Lítum á það sem er á döfinni í nánustu framtíð.
Það er leikur á morgun á móti val.
Erfiður leikur, ef einhver á leið framhjá stjörnuvelli annað kvöld,endilega
kíkja
Það eru aðeins 2 æfingar og einn leikur, í portúgal!! Já tíminn líður í æfingum. (fer samt út á laugardaginn)
Úti æfum við 12 sinnum á 6 dögum, shjiiiííí
Ég kem heim 1. apríl, gæti það verið gabb..?
Binni á ammæli 3. apríl...hmmm.
Ég á bara eftir að vera 7 daga í skólanum og þá kemur páskafrí! Rugl. Raunmætingin mín í skólanum er 73% og fer lækkandi. Mann skal samt halda sér í 8-9. Ég læri bara í páskafríinu...jea right...jú Inga þú lætur þig hafa það....þú verður. Síðan líða kannski aðrir 7 dagar og þá fer landsliðið út og þegar það kemur heim eru prófin að byrja...Gvöð...það þýðir...hmmm...1..2..3...ég á hugsanlega bara eftir að vera 14 daga í skólanum í viðbót....shjíii...ó fokk....Mér skal takast það....
OOooooaa ég á eftir að leysa svo mörg óleyst mál fyrir sumarið. Ég verð að fá mér aðstoðarmann í lífinu. Mig vantar íbúð með húsgögnum í garðabæ eða kópavogi...helst ókeypis! :)
Úff þetta blogg kallar fram áhyggjur!
Blankiflur æltar að farað anda í bréfapoka.